Kæru félagar.
Aðstandendastarfið í Hugarafli er að hefja haustið. Tveir hópar verða að störfum í vetur sem er ánægjuleg viðbót og kemur einnig til móts við maka einstaklinga með geðraskanir.
Á morgun fimmtudag verður fundur kl.16:30-17:30 fyrir maka einstaklinga með geðraskanir. Hér er nýr hópur á ferðinni og við viljum hvetja maka til að mæta og ræða málin. Hópurinn styrkir hlutverk og skilning svo fátt eitt sé nefnt. Hópavinnan gefur færi á samtali við aðra aðstandendur í sömu sporum og þátttakendur deila reynslu sinni og læra af hvort öðru.
Kl.17:30-19:00 er svo fundur með foreldrum einstaklinga með geðraskanir sem hittast að venju kl.17:30-19:00. Hvetjum ykkur til að mæta og hefja með okkur haustið.
Kærar kveðjur.
Auður