 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
|
Batasögur26.5.2008 16:32 Að fá að vera þátttakandi
Ég er ein þeirra sem hef barist við sjúkdóminn allt mitt líf. Ég fæddist 1972 sem er fullsnemmt til að fá viðurkenningu og greiningu, ég var bara sett í flokkinn óþægt og erfitt barn. Líf mitt hafði alls ekki legið í rétta átt fyrr en fyrir rúmum fimm árum þegar ég komst í meðferð sem hentaði mér, um var að ræða hópameðferð fjórum sinnum í viku. Lesa meira... |
2.4.2008 11:28 Hlutverk Tilgangur Markmið
Reynslusaga
Eitt sinn fór ég til læknis og hann benti mér á að fara í iðjuþjálfun. Ég vissi varla hvað ég vildi um þetta leyti en dreif mig þangað. Ég tók eftir því að í iðjuþjálfun var verið í alls kyns handverki. Ég upplifði eins og það væri gerð krafa að maður ætti að föndra. Ég hugsaði oft þurfa þessir iðjuþjálfa virkilega að fara í Háskóla til að læra svona föndur og halda þeir virkilega að föndur passi fyrir alla. Ég var þarna í rúmt ár. Ég vissi ekki af hverju ég var að mæta þangað en líklega vegna þess að mér var sagt að koma, fólkið kom vel fram við mig og mér fannst ekkert annað vera í stöðunni. Ef einhvern lærdóm á að draga af þessu ári komst ég alla veganna að því að ég er ekki handlaginn maður. Ég vissi það svo sem fyrir en þarna fékk ég staðfestingu. Lesa meira... |
7.11.2007 22:16 Batasaga af þunglyndi og félagsfælni
Halló, ég er kölluð Dísa og mig langar að segja ykkur söguna mína.
Ég hef verið þunglynd, félagsfælin og með kvíða í mörg ár. Ég átti mjög erfiða æsku, þar sem mikið einelti kom til sögu. Alveg frá því ég var krakki byrjaði þunglyndið að festa sér rætur, það sem hélt mér gangandi og á lífi var fjölskyldan mín. Ég er mjög heppin með fjölskyldu, en ég átti enga vini og treysti engum nema mínum nánustu. Lesa meira... |
18.10.2007 15:19 Reynsla Þórdísar
Ég lenti í miklu einelti þegar ég var í grunnskóla, sem betur fer eða verr (veit ekki hvort er) þá man ég ekki eftir miklu, bara einstökum atriðum, ég er búin að blokkera fyrir margt.
Lesa meira... |
25.9.2007 09:54 Batasaga um kvíðaröskun
Ég hafði þjáðst af kvíðaröskun í einhver ár án þess að hafa fengið greiningu. Hægt og sígandi hafði hún gagntekið mig, gegnsýrt hugsun mína og framkomu. Ef framkomu má kalla, ég var farin að verða stjörf og svipbrigðalaus. Ég talaði orðið hægt og hreyfði mig hægt. Framtaksleysi og örvænting réði ríkjum Lesa meira... |
22.9.2007 01:01 Mín Skoðun 2.0
Ég er á fertugsaldri og hef mikla reynslu af hinum svokölluðu "geðsjúkdómum", sem Sálfræðingurinn E Fuller Torrey kallar málfræðivillu og líkir við að talað sé um fjólubláa hugmynd eða vitur svæði, að orðin "mental" og "disease" (geð-sjúkdómur) geti ekki farið saman.
Lesa meira... |
22.8.2007 09:54 Reynslusaga af kvíðaröskun
Sumarið 2006 greindist ég með altæka kvíðaröskun. Kvíðinn hafði reyndar verið fylgifiskur minn í mörg ár en í kjölfar mikill breytinga í lífi mínu 2004 og 2005, keyrði um þverbak. Þegar ég greindist var kvíðaröskunin farin að hafa víðtæk áhrif á hugsun mín og tilfinningalíf. Lesa meira... |
22.8.2007 09:53 Geðklofi og valdefling
Tilgangur þessarar greinar er að fjalla um mína eigin reynslu af geðklofa, út frá hugmyndafræði Hugarafls með aðferðafræði valdeflingar. Lesa meira... |
22.8.2007 09:53 Að lifa með geðsjúkdóm
Ég greindist með geðklofa og þunglyndi fyrir nokkrum árum. Ég var búinn að vera þunglyndur síðan á táningsaldri en leitaði mér ekki hjálpar fyrr en geðklofa einkennin komu fram. Lesa meira... |
22.8.2007 09:52 Mín skoðun
Ég er á fertugsaldinum og hef mikla reynslu af geðröskunum frá unga aldri. Var alltaf útundan, taugaóstyrkur og feiminn, lagður í einelti í barna og gagnfræðaskóla. Átti erfið unglingsár fór að drekka snemma og var frekar reiður ungur maður. Átti foreldra sem mér þótti erfiðir, sem skildu (og ég tók það inná mig),sem samt hafa hjálpað mér mjög mikið. Lesa meira... |
22.8.2007 09:51 Reynslusaga af þunglyndi og geðklofa
Í þessari ritgerð ætla ég að reyna að koma því til skila hvernig það er að lifa með þunglyndi og geðklofa. Ég hef lifað með þunglyndi síðan ég var táningur, um 12 ára aldur byrjuðu fyrstu einkennin að koma fram. Ég greindist síðan með geðklofa þegar ég var tæplega þrítugur. Það er von mín að þessi reynslusaga muni nýtast öðrum sem eru að takast á við geðræn vandamál. Lesa meira... |
|
|
|
|
|
 |
|
Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429
|
|
 |
 |
 |
 |
|