Skip to main content
Fréttir

Fótbolti.net styrkir Hugarafl

By september 6, 2017No Comments

Fyrsta Everton treyjan sem Gylfi Þór Sigurðsson áritaði var boðin upp fyrir skemmstu á Fótbolti.net.  Hæsta boð hljómaði upp á 220 þúsund og rann allur ágóði til Hugarafls.  Gylfi sem átti stórleik og skoraði 2 mörk í sigurleik gegn Úkraínu á þriðjudagskvöld, varð nýverið dýrasti leikmaðurinn í sögu Everton þegar hann gekk til liðs við félagið frá Swansea á 45 milljónir punda.  Á sama tíma varð Gylfi dýrasti íslenski leikmaðurinn í sögunni.

Hugarafl þakkar Fótbolta.net, Gylfa og styrktaraðilum sem áttu hæsta boðið í treyjuna kærlega fyrir framtakið og stuðninginn sem kemur sér vel í starfi samtakana þessa dagana.

Gylfi Þór Sigurðsson áritar fyrstu Everton treyjuna.

Hugarafl þakkar fótbolta.net, Gylfa og öllum sem tóku þátt í uppboðinu fyrir veittan stuðning.