a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
26.5.2008 16:38
Upp á grasið aftur

HUGARAFL og Árni Tryggvason efna til opins fundar um geðheilbrigðismál í Norræna húsinu í dag, sunnudag 25. maí. Tilgangur fundarins er að varpa ljósi á fleiri leiðir í bata geðsjúkra og aukna valmöguleika.


HUGARAFL og Árni Tryggvason efna til opins fundar um geðheilbrigðismál í Norræna húsinu í dag, sunnudag 25. maí.

Tilgangur fundarins er að varpa ljósi á fleiri leiðir í bata geðsjúkra og aukna valmöguleika. Þá verður rætt um hvort stíga megi fleiri skref í þjónustu og þróa fleiri brýr á milli stofnana. Jafnframt verður rætt um að fara „hálfa leið“ í meðferð, sem ekki byggir á stofnanalegum gildum. Fyrirlesarar eru Árni Tryggvason leikari, Herdís Benediktsdóttir frá Hugarafli, Pétur Hauksson geðlæknir, Eyrún Thorstensen hjúkrunarfræðingur, Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi og Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi en umræður verða í lok fundar.

Fundurinn stendur frá 16.30 til 18.




Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429