a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
26.5.2008 16:42
Þurfum að berjast fyrir valmöguleikunum

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SALUR Norræna hússins var troðfullur og setið fram í anddyri á opnum fundi Hugarafls um geðheilbrigðismál sem haldinn var í gær.

Eftir Helga Bjarnason

helgi@mbl.is

SALUR Norræna hússins var troðfullur og setið fram í anddyri á opnum fundi Hugarafls um geðheilbrigðismál sem haldinn var í gær. Fundurinn, „Upp á grasið aftur“, var haldinn í tilefni af fimm ára afmæli samtakanna Hugarafls og vegna frumkvæðis Árna Tryggvasonar sem rætt hefur opinberlega um veikindi sín og aðbúnað á geðdeild Landspítalans – háskólasjúkrahúss.

Fyrirlesarar sögðu frá hugsjónum Hugarafls í upphafi og hvernig gengið hefði að koma þeim áfram. Auður Axelsdóttir og Elín Ebba Ásmundsdóttir, sem voru meðal stofnenda Hugarafls, sögðu að til væru fjölbreyttar leiðir fyrir fólk sem ætti við geðsjúkdóma að stríða til að ná bata og mikilvægt fyrir notendur þjónustunnar að koma sjálfir þar að og velja sér leiðir við hæfi. Elín Ebba sagði að hópurinn sem léti þessi mál til sín taka þyrfti ekki að vera sammála um alla hluti en sjá til þess að mismunandi sjónarmið væru virt. „Við þurfum að berjast fyrir valmöguleikunum,“ sagði hún.

Herdís Benediktsdóttir frá Hugarafli sagði frá sinni reynslu og hugmyndum um Brúna, rólegan og fallegan griðastað sem yrði mótvægi og viðbót við geðdeild. Hugmyndin byggist á brú milli stofnana og samfélagsins.

Opinská umræðaEyrún Thorstensen hjúkrunarfræðingur sagði frá samskiptum á geðdeild og mikilvægi þeirra. Pétur Hauksson geðlæknir sagði að raddir notenda yrðu að heyrast. Þær væru besta eftirlitið fyrir heilbrigðiskerfið. Hann sagði að það gæti verið erfitt að vera innan um margt geðveikt fólk og sagði að leggja þyrfti áherslu á bata utan stofnana. Hægt væri að auka valmöguleika notenda með því að efla slíka þjónustu. Þá fór Pétur yfir stöðu þeirra allra veikustu og vildi tala máli þeirra. Sagði að þrátt fyrir allt hefði margt áunnist.

Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi sagði að umfjöllun fjölmiðla um geðsjúkdóma þyrfti að byggjast á þekkingu, skilningi og fagmennsku. Einnig að rætt væri opinskátt um málin, þögnin rofin. Hann lýsti jafnframt þeirri skoðun sinni að ekki væri sama hvernig þetta væri gert. Spurði til dæmis þeirrar spurningar hvort hafa mætti geðsjúkdóma og geðræna erfiðleika fólks í flimtingum. Vísaði hann í því efni til viðbragða við umfjöllun Spaugstofunnar um veikindi borgarstjórans í Reykjavík og gagnrýndi umfjöllun þáttarins.

Þá höfðaði Jón Viðar til ábyrgðar blaðamanna og tók dæmi af viðtali. Lýsti hann þeirri skoðun sinni að enginn ætti að tjá sig um veikindi nema hann hefði annaðhvort reynslu af þeim sjálfur eða hefði aflað sér víðtækrar þekkingar á efninu.

Fundurinn var haldinn í kjölfar greinar sem Árni Tryggvason skrifaði í Morgunblaðið fyrir skömmu og vakti þjóðarathygli, eins og Styrmir Gunnarsson fundarstjóri rifjaði upp. Árni hafði áhuga á að eitthvað gerðist frekar og þess vegna væri fundurinn haldinn.

Árni sagði frá glímunni við sjúkdóminn í áratugi og reynslu sinni af læknum og geðdeildum. Hann sagði að oft hefði verið erfitt en gat þess um leið að hann hefði oft gert bestu hlutina á leiksviðinu þegar honum leið sem verst. „Þetta var oft erfitt en ég hafði það af án þess að taka lyf – þar til núna í febrúar,“ sagði Árni og vísaði til veikinda sinna í vetur. Hann sagði að starfsfólkið á geðdeildinni gerði sitt besta og væri til fyrirmyndar, en aðstæður þarna væru ekki nógu góðar.

Heiðursverðlaunin Gáran veitt í fyrsta sinn!

HUGARAFL veitti á fundinum í gær heiðursverðlaun samtakanna í fyrsta sinn. Auður Axelsdóttir afhenti Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, Gáruna.

Auður sagði við þetta tækifæri að Styrmir Gunnarsson hefði breytt umræðunni um geðheilbrigðismál á Íslandi. Hugarafl vildi þakka honum fyrir veittan stuðning við samtökin, góð ráð og áleitnar spurningar.

Um leið og Auður sæmdi Styrmi heiðursverðlaununum sem nefnd eru Gáran las hún upp úr skjalinu sem þeim fylgir. Þar kemur fram að verðlaunin eru veitt fyrir vandaða og fordómalausa umfjöllun og til að þakka stuðning.






Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429