a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
6.6.2008 11:31
Flýja sjúklingshlutverkið

„Geðsjúkir leika lausum hala“ var yfirskrift gjörnings samtakanna Hugarafls sem áttu 5 ára afmæli í gær.

Klæddust félagar í Hugarafli náttfötum sem þau segja táknræn fyrir sjúklingshlutverkið sem þau vilja flýja. Þá ýttu þau sjúkrarúmi frá Kleppspítala sem þau segja táknræn fyrir það hvernig geðsjúkir hafa verið meðhöndlaðir gegnum tíðina með læknisfræðilegri hugmyndafræði og inngripum. Ætlunin með gjörningnum var að vekja athygli á málefnum geðsjúkra enda segja þau að aðbúnað við þá þurfi stórlega að bæta og sjúklingarnir eigi rétt á að hafa eitthvað um meðferð sína að segja




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429