a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
11.5.2008 22:11
Staðan í samfélagsgeðþjónustu
Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is MÁLÞING um samfélagsgeðþjónustu verður haldið 13. maí. Sáu þær Auður Axelsdóttir og Jóhanna Erla Eiríksdóttir iðjuþjálfar um að skipuleggja það en Jóhanna stýrir vettvangsteymi í Kaupmannahöfn.

MÁLÞING um samfélagsgeðþjónustu verður haldið 13. maí. Sáu þær Auður Axelsdóttir og Jóhanna Erla Eiríksdóttir iðjuþjálfar um að skipuleggja það en Jóhanna stýrir vettvangsteymi í Kaupmannahöfn.

„Samfélagsgeðþjónusta er stuðningur og eftirfylgd við einstakling og aðstandendur í bataferlinu og byggist á að efla þátttöku á ný í samfélaginu,“ segir Auður. „Við munum skoða hvar við erum stödd í þessum málaflokki hér heima, fjalla um hugmyndafræði og nálganir. Við þurfum að komast að samkomulagi um hvað skiptir máli og hvernig við ætlum að byggja upp þessa þjónustu. Þess þarf að gæta að sömu gildi eiga ekki við samfélagsgeðþjónustu og í hefðbundinni meðferð og geta þau jafnvel hindrað einstakling í viðleitni hans við að ná stjórn á eigin lífi. Styðja þarf fólk í sínu daglega umhverfi – þar sem það hefur aðgengi að nokkurs konar leiðsögumanni sem er alltaf hægt að leita hjálpar hjá.

Deila hugmyndum og fagþekkinguMeðal gesta á ráðstefnunni er danskt vettvangsteymi: „Við ætlum að heyra um þær leiðir sem Danir hafa farið og munu teymisliðar fræða okkur um þeirra aðferðir og áherslur,“ segir Auður.

Í danska vettvangsteyminu starfa 12 sérfræðingar af ólíkum sviðum, m.a. iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingur, félagsráðgjafi og læknir: „Hver meðlimur teymisins sinnir á bilinu 10 til 12 einstaklingum og er þeirra aðaltengiliður fyrir aðstoð og þjónustu,“ útskýrir Auður. „Hann vinnur bókstaflega að öllum málum skjólstæðingsins hverju sinni og innan teymisins sjálfs vinna allir á svipaðan hátt. Þeir deila fagþekkingu sín á milli og hugmyndum að lausnum á vandamálum.“

Skjót og aðgengileg þjónustaFagteymið sem verður á málþinginu sinnir skjólstæðingum sem eiga við fjölþættan vanda að stríða, eru með geðræn vandamál og hafa sumir ánetjast fíkniefnum. Reynt er að styðja þetta fólk þannig að það geti búið heima þrátt fyrir erfiðleikana og felst lausnin meðal annars í því, að þurfi einstaklingurinn á aðstoð að halda, á hann alltaf auðveldan aðgang að tenglinum sínum og getur með skjótum hætti fengið þá þjónustu sem hann þarfnast.

Málþingið fer fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju á þriðjudag kl. 10 til 12.30. Fer það fram á dönsku og ensku og má skrá þátttöku á audeir@internet.is.

Meðal fyrirlesara má nefna, auk Auðar, Bjarna Karlsson prest, Hallgrím Björgvinsson frá Hugarafli, Jóhönnu Erlu Eiríksdóttur iðjuþjálfa og Margréti Jónsdóttur aðstandanda.




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429