a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
4.12.2008 10:35
Verðlaunuð fyrir frumkvöðlastarf og dugnað
HVATNINGARVERÐLAUN Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) voru veitt í annað sinn í gær á alþjóðadegi fatlaðra. HVATNINGARVERÐLAUN Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) voru veitt í annað sinn í gær á alþjóðadegi fatlaðra. Veitt voru þrenn verðlaun, til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Guðjón Sigurðsson var verðlaunaður í flokki einstaklinga fyrir dugnað og árangur í málefnum fatlaðra. Tónstofa Valgerðar fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms. Akureyrarbær var verðlaunaður í flokki stofnana, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á „Independent living“ notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða. Guðjón er fyrir miðri mynd. Honum á hægri hönd er Valgerður Jónsdóttir skólastjóri Tónstofu Valgerðar, en á vinstri hönd Kristín Sigursveinsdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar.

silja@mbl.is




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429