Liðsmenn Jerico eru hagsmunasamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda eineltis.
Slóðin á vefsíðu þeirra er :
http://lidsmennjerico.
wordpress.com/
Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra. Samtökin eiga að vera vettvangur ráðgjafar fyrir þolendur eineltis og aðstandendur þeirra og vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti.
Liðsmenn Jerico vilja að öllum sé boðið betra líf. Að allir opni hjarta sitt og sál fyrir þolendum eineltisofbeldis og hjálpist að við að brjóta niður múra þagnar og skammar. Við þurfum að breyta þjóðfélagi okkar til betri vegar með mannlegri og heilbrigðari samskiptum og sýnum samhug og samstöðu. Þjóðfélagið er að bregðast stórum hluta þjóðfélagsþegna með því að þegja í hel alvarleika og hrikalegar afleiðingar eineltisofbeldis með því að afneita vandanum.
Slóðin á heimasíðu samtakanna er: http://lidsmennjerico.wordpress.com/