a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
6.9.2009 23:52
Kvíðaefling ríkisstjórnarinnar

Ég veit að margir skrifa, ræða og hugsa um þessa kreppu sem nú gengur yfir okkur Íslendinga. Ég held ég megi segja að allir í þjóðfélaginu gangi í gegnum erfiða hluti og mætti þar nefna flesta hópa þjóðfélagsins í dag.

En að skerða bætur öryrkja og eldri borgara er fyrir neðan allt. Eflaust er misjafnt hvernig þetta fólk lendir í málunum. En tölum um meðalöryrkjann, sem hefur aðeins laun frá Tryggingarstofnun Ríkisins og kannski smálífeyrissjóð, allt eftir hvenær viðkomandi hætti að vinna vegna veikinda sinna.

Algengt er að þeir sem veikjast af andlegum sjúkdómum veikjast um eða eftir tvítugt. Hvað segir það okkur? Þetta fólk hefur engan lífeyrissjóð. Aðrir veikjast seinna á lífsleiðinni, hafa unnið í nokkur ár og hafa lítinn lífeyrissjóð á bak við sig. Andlegir sjúkdómar hafa verið og eru, enn þann dag í dag á huldu fyrir öðrum. Það sést ekkert á þessu fólki utaná. Það gengur ekki með hækjur eða önnur hjálpartæki. Flest af þessu fólki er falið heima hjá sér, vegna þess að það hefur ekki getu til að aðlagast þjóðfélaginu á eðlilegan hátt. Þess á milli þarf það að leggjast inn á sjúkrahús og þótt reynt sé að stytta veru þeirra þar, fer það beint heim og er þar. Margir geta jafnvel ekki sinnt daglegum þörfum eins og að fara út í búð eða gert aðra hluti sem almenningi þykir sjálfsagður.

Ekkert eða mjög lítið hefur verið gert til að sinna þessum sjúklingum til að bæta þeirra lífsgæði. Sjálfstæðar stofnanir hafa verið stofnaðar og hjálpa til. 

Get ég þar nefnt Geðhjálp, Geysi og síðast en ekki síst Hugarafl. Eflaust hefur þú, lesandi góður heyrt eða lesið eitthvað um þessa staði en í raun eru þetta bara orð sem koma og fara í lífinu og þið gerið ykkur ekki grein fyrir, hvað fer fram á þessum stöðum. Um marga sjúkdóma er verið að ræða, þegar þessi mál eru rædd. Þeir geta verið eins margir og hver manneskja í þjóðfélaginu er. Allir einstaklingar eru ekki steyptir í sama mót og sama má segja um fólk með geðræna sjúkdóma. Allt eru þetta einstaklingar, hver með sínu móti, sinn persónuleika og hæfileika. 

En nú er á brattann að sækja. Við erum látin taka þátt í þessum hildarleik hvítflibbanna.   Því er komin tími til að þeir fari að hugsa um afleiðingar skerðingar hjá öryrkjum og tala ég þá aðallega fyrir munn sjúklinga með geðræn vandamál. Kvíði er dýrkeyptur sjúkdómur. Hversu margir heilbrigðir einstaklingar munu veikjast af andlegum sjúkdómum nú um þessar mundir vegna kvíða?

Við eigum að sætta okkur við, að nokkrir fjárglæframenn léku sér með peninga landsmanna og kreppan skall á. Kvíði og ofsakvíði eru fylgifiskar margra, ef ekki flestra geðsjúkdóma. Hvað segir það okkur? Allt er að hækka og er ég þá aðallega að tala um lyf, (sem oft á tíðum eru mjög dýr), matvöru, húsaleigu, rafmagn, síma og tryggingar. Þetta eru grunn nauðsynjar hvers manns í þjóðfélaginu í dag. Og um leið á að skerða lífeyrissjóði og fleira hjá þessum hópi fólks. Og hvað gerist hjá andlega veikum einstaklingi? Mjög einfalt svar er við þessu. Hann fær kvíða. Lokar sig meira inni og hver veit, hvort sumir þeirra fái sína næringu, sem þeir þurfa á að halda. Endirinn er fárveikur sjúklingur sem lendir á sjúkrahúsi. Hve fljótt verður þessi einstaklingur mjög dýr í rekstri? Ekki er hver nótt á sjúkrahúsi gefins fyrir þjóðarbúið. Mér finnst að stjórnmálamenn hugsi ekki alltaf langt út fyrir rammann.

Því er kominn tími til að þeir fari að hugsa um afleiðingar skerðingar hjá öryrkjum og tala ég þá aðallega fyrir munn sjúklinga með geðræn vandamál. Kvíði er dýrkeyptur sjúkdómur. Hversu margir heilbrigðir einstaklingar munu veikjast af andlegum sjúkdómum nú um þessar mundir vegna kvíða?  Landsmenn góðir. Haldið þið að þessar krónur sem teknar eru af fátæku fólki, muni breyta einhverju í þessari milljarðakreppu? Ég held ekki. Hún verður dýru verði keypt.

Ég er ein af þeim heppnu sem hef lent í því að vera dregin út úr rúminu fyrir um tveim árum síðan og fékk tækifæri til að kynnast HUGARAFLI, sem starfar í Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis, Álfabakka 16. Ég hefði aldrei trúað því að líf mitt ætti eftir að breytast eins og hefur gerst. Í dag geng ég um, með beint bak og skammast mín ekki fyrir sjúkdóm minn og með vitneskju um að ég geti leitað til þess góða fólks, sem þar starfar, er ómetanlegt. Ef kvíðinn mun birtast, vegna hvers sem er, hefur maður alltaf hið góða starfsfólk, sem þar vinnur, tilbúið til að hjálpa manni og leiða mann á réttu brautina, sem möguleg er. Þau gefa manni kraft og þor til að halda áfram og ráða við vandamálin. Ég á þeim mikið að þakka og veit ég að flestir ef ekki allir HUGARAFLSMEÐLIMIR, hafa sömu sögu að segja.




Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429