a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
3.10.2009 23:29
STYRKJA GEÐSJÚKA TIL NÁMS

Forvarna- og fræðslusjóðurinn Þú getur! heldur styrktartónleika í Bústaðakirkju í kvöld klukkan 20. Þetta eru aðrir styrktartónleikarnir sem sjóðurinn heldur en í fyrsta sinn sem hann veitir styrki. Markmið sjóðsins er að styrkja þá sem hafa átt við geðræn veikindi að stríða til náms, eyða fordómum og hvetja fagfólk til nýjunga í geðheilbrigðisþjónustu en á tónleikunum hljóta fimm námsmenn styrki.

"Við munum veita þremur einstaklingum styrki til náms auk þess sem tveir fá styrk í formi tölvu. Þá hlýtur Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi hvatningarverðlaun fyrir að fitja upp á nýjungum í þjónustu við geðsjúka en hún hefur átt ríkan þátt í að efla geðheilbrigðisþjónustu utan stofnana og komið á samvinnu heilsugæslunnar og Hugarafls sem eru samtök notenda," segir Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og formaður stjórnar sjóðsins.

Ólafur stofnaði sjóðinn í fyrra og segir hann hvatann hafa komið úr starfi sínu sem geðlæknir. "Ég hef orðið vitni að algerum kraftaverkum hjá fólki sem hefur fundið leið út úr veikindum sínum með því að fara í nám. Þetta er oft fólk sem hefur dottið út úr skóla og vinnu og ekki átt sér neinn stað í lífinu en náð fótfestu á ný."

Ólafur segir að geðsjúkum bjóðist ýmiskonar endurhæfing og stuðningur en að hann hafi þótt vanta stuðning við þá sem vilja stunda nám í hefðbundnu skólakerfi. Hann hefur lengi haft áhuga á forvörnum og séð um fræðslu fyrir fagfólk og almenning. "Það liggur ljóst fyrir að það margborgar sig að styrkja fólk til náms. Við erum til dæmis að styrkja unga konu í söngnám sem kostar margfalt minna en ef hún væri veik og inni á spítala."

Ólafur gengur út frá því að haldnir verði árlegir styrktartónleikar héðan í frá. "Við höfum fengið marga af þekktustu listamönnum þjóðarinnar til liðs við okkur og er það stjórn sjóðsins mikil hvatning hve listamennirnir og fjölmargir aðrir eru viljugir að leggja sjóðnum lið." Meðal flytjenda á tónleikunum eru Land og synir, Egill Ólafsson, Friðrik Ómar, Bergþór Pálsson og Jóhanna Guðrún en kynnir er Edda Björgvinsdóttir. Húsið verður opnað klukkan 19.30 og mun allur ágóði af sölu miða renna til sjóðsins. Miðasala er í Lyfju Lágmúla og við innganginn.




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429