Alvarlegar rangfærslur fyrirtækis
Bæklingur um þunglyndi kærður til landlæknis GlaxoSmithKline biður apótek og heilbrigðisstofnanir að fjarlægja bæklinginn þar sem gefið var í skyn að lyf væru eina aðferðin til að lækna þunglyndi
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
LYFJAFRAMLEIÐANDINN GlaxoSmithKline hefur sent bréf til allra apóteka og heilbrigðisstofnana á Íslandi og beðið um að bæklingur um þunglyndi, sem fyrirtækið gaf út árið 2000 og hefur staðið fólki til boða á fyrrgreindum stöðum, verði tekinn úr umferð. Ástæðan er sú að í bæklingnum var gefið í skyn að lyf væru eina aðferðin til að lækna þunglyndi og sálfræðimeðferð væri gagnslítil í baráttunni við sjúkdóminn.
Bæklingurinn hafði legið frammi fyrir almenningi í hartnær áratug eða þangað til Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur las bæklinginn í byrjun janúar sl., sá að upplýsingar í honum stönguðust á við rannsóknir sem sýndu að þunglyndislyf væru ekki eins virk og áður hafði verið talið, og kærði bæklinginn til landlæknis.
Óbeinn áróður fyrir lyf
„Ég skrifaði formlega kæru til landlæknis, með fjölda vísana í vísindagreinar, þar sem ég benti á að í bæklingnum væru ýmsar rangar upplýsingar varðandi orsakir þunglyndis og meðferð við því,“ segir Steindór. Hann bætir því við að landlæknir hafi boðið honum á sinn fund og í kjölfarið var kæran lögð inn til sérfræðinga. Þeir tóku undir flest atriði í kæru Steindórs og úr varð að landlæknir sendi forstjóra Lyfjastofnunar bréf í mars þar sem þess var krafist að stofnunin tæki bæklingin úr umferð í ljósi rangra upplýsinga.
Þegar ekkert hafði verið aðhafst um miðjan septembermánuð hafði Steindór aftur samband við landlækni sem þá setti sig beint í samband við GlaxoSmithKline. Bæklingurinn var tekinn úr umferð en til stendur að endurskrifa hann.
„Það er bannað að vera með lyfjaauglýsingar í blöðum en þarna var lyfjafyrirtæki að nota þann möguleika að gefa út bækling með óbeinum áróðri fyrir þunglyndislyf,“ segir Steindór og bætir við að rangfærslur í bæklingnum gætu haft eitthvað með það að gera að miðað við höfðatölu sé neysla Íslendinga á þunglyndislyfjum með því mesta sem gerist í heiminum.
Snerti hann persónulega
Aðspurður segir Steindór að efni bæklingsins hafi snert hann persónulega. „Ég hef átt við alvarleg geðræn vandamál að stríða og hef notað lyf í miklum mæli. Það er mjög alvarlegt að skilaboðin í bæklingnum voru þau að eina leiðin til að meðhöndla þunglyndi væru lyf. Það var sagt að sálfræðimeðferð hefði ekki áhrif á efnaójafnvægi sem orsakaði þunglyndi en tengslin milli þunglyndis og magns serótóníns eru ósönnuð. Það vita allir sem hafa lent í þunglyndi að það er ýmislegt annað en lyf sem er hægt að nota til að vinna bug á meininu,“ segir hann.
Steindór segir persónubundið hvað henti hverjum og einum en fyrir hann hafi hugræn atferlismeðferð og hreyfing gagnast mjög vel. „Þessi nýju þunglyndislyf valda eituráhrifum hjá mér svo ég þoli ekki nein lyf í dag. Ég er að kljást við þunglyndi lyfjalaust.“
Sálræn samtalsmeðferð hefur engin áhrif
Úr bæklingi GlaxoSmithKline sem nú hefur verið tekinn úr umferð:
„Sálfræðileg samtalsmeðferð hefur lítil áhrif á þá röskun í efnajafnvægi heilans sem orsakar sjúkdóminn. Lyfjagjöfinni er ætlað að koma aftur á serótónínjafnvægi í heilanum.“