a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
22.10.2009 12:45
Hugræn atferlismeðferð

Ragnhildur Guðmundsdóttir

Hugræn atferlismeðferð (HAM) er meðferðarform þróað af geðlæknum og sálfræðingum frá 1960 og byggir á tengslum hugsana, hegðunar og líðan.

HAM er orðið nokkuð útbreitt meðferðarform á Íslandi og er m.a. veitt af sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum, félagsráðgjöfum og geðlæknum í bæði einstaklings- og hópmeðferðum.

Í HAM er einstaklingnum hjálpað við að skoða á kerfisbundinn hátt hvernig hugsanir, hegðun og líðan tengjast og bent á leiðir til að breyta hugsunum eða hegðun til að hafa áhrif á líðan sína.

Markmið HAM er m.a. að læra að þekkja sjálfvirkar ógagnlegar hugsanir sem geta orsakað vanlíðan og sjá við þeim. Lögð er áhersla á að hrekja megi ógagnlegar hugsanir með agaðri og markvissri rökhugsun og læra að nota hjálplegri hugsanir. Einnig er mikilvægt að kortleggja hegðun og breyta henni með því t.d. að auka virkni eða draga úr virkni.

Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að HAM getur borið árangur við m.a. depurð, kvíða, áföllum, fíkn, samskiptavanda, geðhvörfum, lágu sjálfsmati, áráttu og þráhyggju.

Félag um hugræna atferlismeðferð (http://www.ham.is/)

Geðfræðslan




Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429