Forsetinn afhenti Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Tuttugu og einn einstaklingur og samtök voru heiðruð á hátíð í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Fimm hlutu verðlaun og forseti Íslands afhenti fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar Samfélagsverðlaunin.
fjölmiðlar Samfélagsverðlauna-hátíð Fréttablaðsins var haldin í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
fjölmiðlar Samfélagsverðlauna-hátíð Fréttablaðsins var haldin í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Á annað hundrað manns voru þar samankomin til að gleðjast með þeim rúmlega tuttugu einstaklingum og samtökum sem útnefnd voru í fjórum flokkum Samfélagsverðlaunanna.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum, auk heiðursverðlauna en þau verðlaun komu í ár í hlut sagnamannsins og kennarans Jóns Böðvarssonar sem opnað hefur heim Íslendingasagna fyrir miklum fjölda samtímamanna.
Slysavarnafélagið Landsbjörg tók við Samfélagsverðlaununum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Samfélagsverðlaunin nema einni milljón króna og sagði Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, að verðlaunaféð kæmi sér vel nú þegar verið væri að byggja að nýju upp búnað Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Eins og kunnugt er skildi sveitin eftir mikinn búnað á Haítí eftir jarðskjálftana í janúar.
Hvunndagshetja ársins er gleðigjafinn André Bachmann. Verðlaunin hlýtur hann fyrir frumkvæði sitt að árlegri jólaskemmtun fyrir fatlaða, auk þess sem André smitar frá sér gleðinni hvar sem hann kemur.
Gauraflokkurinn í Vatnaskógi vann til verðlauna í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Gauraflokkurinn er sumarbúðatilboð fyrir drengi með ADHD. Þörfum þeirra er meðal annars mætt með fjölmennara starfsliði en ella. Aðstandendur flokksins afla sjálfir fjár vegna aukins kostnaðar þannig að foreldrar drengjanna greiða sama verð fyrir dvölina og aðrir foreldrar.
Hugarafl hlaut verðlaun í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Þar starfa saman á jafnréttisgrunni notendur geðheilbrigðisþjónustu og fagfólk. Markmið Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins er að vekja athygli á broti af því kærleiksríka starfi sem unnið er víðs vegar í íslensku samfélagi. Allir útnefndir fengu verðlaunagripi sem voru hannaðir og smíðaðir af handhöfum Samfélagsverðlaunanna í fyrra, Ásgarði smíðaverkstæði. Aðrir vinningshafar en Samfélagsverðlaunahafarnir fengu síma í verðlaun og var hann gjöf frá Símanum.