 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
|
12.3.2006 16:44
Sunnudaginn 12. mars, 2006 - Innlendar fréttir
"Ég veit af eigin raun hvað sjúklingarnir eru að ganga í gegnum"
Umboðsmaður geðsjúklinga ráðinn til starfa á gæðasviði geðdeildar LSH
Eftir Helgu Ólafsdóttur meistaranema í blaða- og fréttamennsku ÞRÁTT fyrir að máltækið "maður er manns gaman" eigi oft við geta samskipin einnig tekið á sig mynd þess hryllings að samskiptin verði næsta óbærileg.Bergþór Grétar Böðvarsson vill sannarlega hlúa að fyrrgreindum samskiptaflokki en síðastliðinn föstudag tók hann við starfi fulltrúa í gæðaráði geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss sem fulltrúi notenda. Hugmyndin að starfinu er frá honum komin en eins og Bergþór segir sjálfur frá hafa margir gert það að verkum að þetta er orðið að veruleika t.d. notendur þjónustunnar, starfsfólk, Hugarafl, gæðaráð geðsviðs, Eydís Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri geðsviðs og Héðinn Unnsteinsson. Þessir og fleiri eigi mikið hrós skilið og sýni að svona starf byggist á samvinnu. Bergþór hefur átt við geðræn vandkvæði að stríða í fjölmörg ár og þekkir vel til vistar á geðdeild. "Hugmyndin að þessu starfi byrjaði að gerjast með mér fyrir mörgum árum. Ástæðan er fyrst og fremst skortur á tengingu milli þeirra sem ákvarðanir taka og þeirra sem starfa á gólfinu," segir Bergþór og vísar sérstaklega til samskipta milli starfsfólks geðdeilda og sjúklinga. "Í raun og veru var það Héðinn Unnsteinsson sem gaf mér innblástur og það sjálfstraust sem ég þurfti til að taka af skarið. Hann er mín fyrirmynd," segir Bergþór en Héðinn hefur unnið ötult starf á sviði geðræktar hér á landi. Bergþór segir hugmyndina hafa fallið í afar góðan jarðveg Eydísar Sveinbjarnardóttur sem hann leitaði til en það var einmitt hún sem tók á móti honum árið 1989 þegar hann lagðist fyrst inn á geðdeild alveg fársjúkur maður. Það sé ekki lengra síðan en síðastliðið haust sem hann bar upp hugmyndina og nokkrum mánuðum síðar er starfið orðið að veruleika. Að sögn Bergþórs er um mikil tímamót að ræða en hann þekkir ekki fordæmi þess að sjúklingur hafi hafið störf til að vera bæði starfsfólki og sjúklingum innan handar. Tilgangurinn að auka gæði Bergþór hefur starfað í nokkur ár með starfshópnum Hugarafli en hann er skipaður fólki sem hefur átt við geðsjúkdóma að stríða en er á batavegi. Hann ásamt fleirum hefur m.a. unnið að gæðaeftirlitsverkefninu "Notandi spyr notanda" en markmið verkefnisins er að auka gæði þeirrar þjónustu sem veitt er á geðdeildum með því að fá sjúklinga, þ.e.a.s. notendur þjónustunnar, til þess að segja álit sitt á viðkomandi geðdeild. Þá er stefnt að því að efla áhrif notenda. Starfslýsingu hins nýja verkefnis Bergþórs er best lýst með tveim orðum - að hjálpa. "Það vantar svo tilfinnanlega meiri tengingu á milli starfsfólks geðdeilda og sjúklinga. Það þarf einhvern sem sjúklingarnir geta talað við og sem starfsfólk getur leitað til. Starfsfólkið veit í raun ekkert hvernig sjúklingunum líður og fyrir vikið verður sjúklingnum það oft erfitt. Þarna þarf fólk að mætast á forsendum gagnkvæms skilnings. Til þess er ég kominn til starfa." Tilgangur og markmið starfsins er að efla og móta þekkingu á geðsviði, bæta ímynd og þjónustu geðsviðs, sýna fram á að fyrrverandi notendur eigi fullt erindi í vinnu á geðheilbrigðisstofnunum og auka samvinnu við notendur á geðsviði. Auk þess mun hann sitja gæðaráðsfundi og vinna að stefnumótun en fyrir liggur að útbúa námskeið til að auka skilning starfsfólks á geðsjúkum. Bergþór bætir við að það hafi verið gæðaeftirlitsverkefnið sem varð til þess að honum og öðrum meðlimi í Hugarafli hafi verið boðið að vinna með gæðaráði geðsviðs og eftir það fór hugmyndin að fyrrgreindu starfi að mótast allverulega. Hlustum á hjartað Það er ekkert launungarmál að líf geðsjúkra er langt frá því að vera dans á rósum. Fordómarnir eru miklir en liður í að búa til betri heim sé upplýstara samfélag, að fólk vinni betur saman og skilji betur hvert annað. "Hættum að láta stjórnast af endalausum reglum og reglugerðum og hættum að stimpla hvert annað. Það er alltof mikið um hlutverkaleiki og fólk er rígbundið af einhverjum fyrirframtilbúnum ramma sem einkennist af endalausum boðum og bönnum. Fólk er alltof hrætt við að koma fram eins og því er eiginlegt. Hlustum því meira á hjartað og verum betri hvert við annað."
Til baka
|
|
|
|
|
 |
|
Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429
|
|
 |
 |
 |
 |
|