"EIN af hugmyndum verkefnisins er að athuga hvort fiskneysla verndi gegn fæðingarþunglyndi og það eru nokkuð sterkar líkur á því miðað við fyrri niðurstöður," segir Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði. "Ég stýri, í samvinnu við eina stofnun í Danmörku, athugun á því hvort fiskneysla hafi verndandi áhrif gegn fæðingarþunglyndi. Það er ekki komin endanleg niðurstaða úr þeirri rannsókn. Við vorum með ákveðinn grunn fyrir en í þessari stóru dönsku rannsókn fáum við alveg sérstakt tækifæri til að skoða þetta betur en áður hefur verið gert. Við erum með stórt úrtak af þunguðum konum og skoðum mataræði þeirra á meðgöngu, barnið eftir að það fæðist og upplýsingar frá konunni um fæðingarþunglyndi og þá fáum við einstakt tækifæri til að kanna þetta samband milli fiskneyslu og fæðingarþunglyndis betur."
Seafood plus-verkefnið
Inga situr nú á ráðstefnu í Tromsö í Noregi um verkefni Evrópusambandsins, Seafood plus. Innan þess eru tuttugu rannsóknarverkefni og stýrir Inga einu af því. "Ásamt þessu samvinnuverkefni við Danmörku stýri ég einu verkefni af þremur sem eru um næringarfræði, hin sautján verkefnin eru um ýmislegt annað í sambandi við sjávarafurðir. Þetta er ráðstefna þar sem allir, sem koma að þessum rannsóknarverkefnum, hittast og kynna ýmsar niðurstöður. Þetta er þriðja ráðstefna verkefnisins, sem hófst fyrir tveimur og hálfu ári, og nú er verið að leggja áherslu á niðurstöður sem koma að heilsu fólks."
Verkefnið sem Inga stýrir heitir; Næringarfræðileg áhrif sjávarafurða fyrir heilsu ungra evrópskra fjölskyldna. "Aðalrannsóknin í þessu er svokölluð íhlutandi rannsókn þar sem við leiðbeinum fólki með ákveðið mataræði yfir ákveðinn tíma og prófum m.a. áhrif á líkamsþyngd, blóðsykur, blóðfitu, insúlín, bólguþætti og þætti sem hafa áhrif á bein. Þetta er stór rannsókn sem nær yfir Ísland, Írland og Spán, með 320 manns í úrtaki milli 20 og 40 ára. Ég var að kynna niðurstöðurnar úr henni hér í Noregi."
Jákvæð áhrif fiskpróteina
Í þessari rannsókn athugaði Inga auk þess andoxunarvirkni í líkamanum. "Það sem er mest spennandi er að við sjáum ákveðin áhrif af omega 3 fitusýrum í fiski. Omega 3 fitusýrurnar eru mest í feitum fiski og lýsi og gera fólki gott að flestra mati. En það sem hefur komið fram á þessari ráðstefnu er að ef maður tekur lýsi eða fær í sig mikið af omega 3 fitusýrum virðist vera mjög nauðsynlegt að fá líka mikið af andoxunarefnum því annars getur mikið magn af fitusýrunum haft öfug áhrif. Andoxunarefni er í fiskinum sjálfum en það er ekki mikið af því í lýsi, andoxunarefni eru líka í grænmeti og ávöxtum. Þegar maður sér neikvæð áhrif af omega 3 fitusýrum er hugsandi að manneskjan fái ekki nóg af andoxunarefnum jafnhliða."
Inga segir að einnig hafi verið mjög áhugavert að þau sáu sértæk lífvirk áhrif af próteinum úr fiski.
"Í fyrsta sinn í heiminum sáum við mjög spennandi jákvæð áhrif af fiskpróteinum á ýmsa þætti sem skipta máli fyrir algenga sjúkdóma.
Það er því mjög alvarlegt að ungir Íslendingar séu að minnka fiskneysluna því við erum að sjá mjög jákvæð áhrif af fiskneyslu sem eru meiri en við höfðum áður haldið."