KLIKKAÐ kaffi og bilaður bakstur var meðal þess sem boðið var uppá á Geðveiku kaffihúsi í Pósthússtræti síðastliðinn laugardag. Kaffihúsinu var komið á fót af Hugarafli í tengslum við List án landamæra.KLIKKAÐ kaffi og bilaður bakstur var meðal þess sem boðið var uppá á Geðveiku kaffihúsi í Pósthússtræti síðastliðinn laugardag.
Kaffihúsinu var komið á fót af Hugarafli í tengslum við List án landamæra.
"Þetta er í annað sinn sem við stöndum fyrir þessu en List án landamæra gengur út á að allir vinni saman án aðgreiningar," segir Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli.
Auk kaffis og bakkelsis var boðið upp á geðgreiningu, tónlist og ljóðalestur á kaffihúsinu.
Að sögn Auðar var viðburðurinn vel sóttur.
"Það var fullt út úr dyrum allan tímann."