a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
2.10.2007 20:32
10. október Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn

“Geðheilbrigði í breyttum heimi, áhrif menningar og margbreytileika” er yfirskrift dagsins í ár. Í tengslum við yfirskriftina lítum við hér á landi m.a. á aukinn fjölda innflytjenda og hvort íslenskt samfélag sé að standa sig í geðheilbrigðismálum fyrir þennan nýja hóp Íslendinga af erlendum uppruna.

“Geðheilbrigði í breyttum heimi, áhrif menningar og margbreytileika” er yfirskrift dagsins í ár. Í tengslum við yfirskriftina lítum við hér á landi m.a. á aukinn fjölda innflytjenda og hvort íslenskt samfélag sé að standa sig í geðheilbrigðismálum fyrir þennan nýja hóp Íslendinga af erlendum uppruna.

Þetta er málefni sem hefur fengið litla umfjöllun og er sannarlega kominn tími til að skoða. Skv. tölulegum staðreyndum er hlutfall geðraskana hærra meðal innflytjenda en innfæddra. Það er mikið álag að flytja í nýtt samfélag og því miður virðist þessi hópur síður leita sér hjálpar. Það eru margir þættir sem spila þar stóran part s.s. tungumálaörðuleikar, fordómar og aðrar menningarlegar áherslur.

Eins munum við líta okkur nær og skoða menningarlegan mun á því að vera greindur með geðsjúkdóm og búa á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þar er stór munur á allri þjónustu og aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Í tilefni þessa mikilvæga dags verður skemmtidagskrá í Perlunni næstkomandi sunnudag, þann 7.október. Áður en dagskráin hefst í Perlunni mun hið árlega geðhlaup og geðsund fara fram í Nauthólmsvík. Í Perlunni hefst dagskráin kl:14 með opnun myndlistarsýningar og kynningarbása um ýmis konar úrræði í geðheilbrigðismálum. Einnig verður skemmtidagskrá, skákmót og að lokum verður fordómum skotið upp með flugeldasýningu. Miðvikudaginn 10. október verður svo haldin þverfagleg ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem ber yfirskriftina “Innflytjendur og Geðheilbrigði”. Að kvöldi 10. október verður minningarguðsþjónusta í Hallgrímskirkju um fórnarlömb sjálfsvíga og þá einstaklinga sem eru að berjast við geðsjúkdóma. Frekari dagskrá má sjá á plakati.

Það þarf að finna leiðir til að miðla upplýsingum um geðheilbrigði, geðsjúkdóma og hvaða úrræði eru í boði til nýbúa/ innflytjenda. Með þessum degi getum við vonandi opnað fyrir umræður um þetta málefni.

Markmið Alþjóðlega Geðheilbrigðisdagsins er umfram allt að minna okkur á að öll höfum við geðheilsu og farsæld okkar er undir því komin að hún sé í lagi. Þetta snertir okkur öll og því hvetjum við alla að taka þátt í þessum mikilvæga degi.




Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429