a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
1.3.2008 11:06
Framúrskarandi konur
Eftir Árna Gunnarsson: "Árangur erfiðisins blasir nú við. Hlutverkasetur hefur verið opnað við Laugaveg. Það er rekið í nánu samstarfi við Hugarafl, en markmið Hugarafls hefur ávallt verið að hafa áhrif á geðheilbrigðisþjónustu, breytta nálgun að verkefnum og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir."
Fyrir nokkrum árum brydduðu tveir íslenskir iðjuþjálfar, Auður Axelsdóttir og Elín Ebba Ásmundsdóttir, upp á nýjum aðferðum í meðferð fólks með geðraskanir. Aðferðafræði þeirra byggist á reynslu, sem þær hafa öðlast í störfum sínum um langt árabil og einnig á reynslu annarra þjóða, notendarannsóknum og samstarfi við sjúklinga.

Rauði þráðurinn í hugmyndafræði Auðar og Elínar er að virkja vilja og getu sjúklinga með starfsendurhæfingu og greiða þeim leið á almennan vinnumarkað. Slík endurhæfing nýtist einstaklingum í bataferli, sem vilja breyta lífsmynstri sínu, en þurfa stuðning og hvatningu til að auka lífsgæði og/eða auka þátttöku á vinnumarkaði.

Árið 2005 greiddi Tryggingastofnun ríkisins 13 milljarða króna í örorkubætur. Lífeyrissjóðirnir greiddu 5 milljarða; samtals 18 milljarða króna. Talið er að af þessari fjárhæð hafi tæpur þriðjungur farið til einstaklinga með geðraskanir. Þessar tölur hafa vafalaust hækkað síðan. Með öflugri starfsendurhæfingu væri unnt að draga úr nýgengi örorku og stuðla að þjóðhagslegum sparnaði, bæði hjá hinu opinbera og í atvinnurekstri. Vart þarf að nefna létti á þraut og þjáningu og uppreisn mannlegra gilda.

Örorkubótaþegum hefur fjölgað mjög á síðustu árum. Árið 2006 voru þeir 13.230; karlar voru 5.132 og konur 8.098. Tíu árum fyrr, 1996, voru bótaþegar 7.577. Fólk á aldrinum 20-24 í hópi bótaþega reyndist 2,3% af íbúafjölda 2006. Á aldrinum 35-39 ára voru karlar 3,4% og konur 6,3%. Ef tekinn er aldurinn 16 til 66 ára þá voru 4,8% karla í hópi bótaþega og 8,1 kvenna, þegar tekið er mið af íbúafjölda.

Í hagfræðiútreikningum, sem birtir voru í Svíþjóð fyrir nokkrum árum, var sýnt fram á, að fyrir hverja 1 krónu, sem varið var til endurhæfingar, skiluðu sér 9 krónur í lækkun útgjalda. Fyrir 2 árum var talið, að ríkissjóður greiddi um 32 milljónir króna vegna hvers einstaklings, sem hæfi töku örorkubóta 25 ára. Miðað var við meðalaldur. Af þessu má ljóst vera, að hvert skref í átt til endurhæfingar og bata er gríðarlega mikilvægt.

Fyrir fimm árum stofnuðu Auður og Elín Ebba starfshópinn Hugarafl ásamt fjórum notendum, sem nýttu sér reynslu þeirra á bataferli. Fljótlega bættust fleiri í hópinn og hefur Hugarafl haft veruleg áhrif á umræðu og afstöðu almennings til málefna fólks, sem glímir við geðraskanir. Fróðleik er komið á framfæri á fundum, ráðstefnum og með útgáfu upplýsingaefnis.

Hugarafl viðaði að sér bakhjörlum. Í þeim hópi eru ASÍ, SA, TR, Samtök lífeyrissjóða og velferðarsvið Reykjavíkur. Einnig nokkrir einstaklingar og áhugamenn um störf þeirra Auðar og Elínar Ebbu.

Í framhaldi af góðri reynslu hjá Hugafli ákváðu þær stöllur að stofna félagið AE starfsendurhæfingu ehf. um rekstur hlutverkaseturs. Til að koma fyrirtækinu á laggirnar þurfti talsverða fjármuni. Víða var leitað, allir voru jákvæðir og lýstu skilningi á þörfinni en stjórnarmenn gengu oft bónleiðir til búðar.

Þó studdi fjárlaganefnd framtakið og heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin hafa komið við sögu. Reykjavíkurborg gerði góðan samning við félagið

En þessar framúrskarandi konur, Auður og Elín Ebba, létu ekki deigan síga, gáfust ekki upp og störfuðu linnulaust að framgangi hugsjóna sinna. Vera má að einhverjir hafi hnotið um einkahlutafélagsform AE starfsendurhæfingar. Það er hins vegar alveg skýrt að allur hugsanlegur arður af starfinu rennur til frekari uppbyggingar. Það væri þó kraftaverki líkast ef einhverjar krónur stæðu út af í lok rekstrarárs.

Árangur erfiðisins blasir nú við. Hlutverkasetur hefur verið opnað við Laugaveg. Það er rekið í nánu samstarfi við Hugarafl, en markmið Hugarafls hefur ávallt verið að hafa áhrif á geðheilbrigðisþjónustu, breytta nálgun að verkefnum og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir. Í Hlutverkasetrinu er unnið eftir hugmyndafræði valdeflingar og líkaninu um iðju mannsins (MOHO) og flokkast félagið innan ströngustu skilgreininga um samfélagsleg fyrirtæki.

Valdefling (enpowerment) felur í sér, að taka stjórn á eigin lífi, hafa áhrif á umhverfi sitt og að vera virkur í samfélagi manna. Líkanið um iðju mannsins er byggt á þeim veruleika, að dagleg verkefni skapi merkingu og tilgang í lífinu. Þegar árangri er náð í iðju, sem skiptir máli, eflist trú á eigin getu, áhrifamáttur verður meiri og sjálfstraust eykst.

Í nýja Hlutverkasetrinu eru aðstæður fremur góðar, mættu þó vera betri. Þegar er ljóst, að mikil þörf er á stækkun setursins enda bíður stór hópur þess að komast í þessa endurhæfingu. Í setrinu starfa iðjuþjálfar, rekstrarstjóri og hönnuðir og starfsmenn, sem hafa reynslu af geðröskunum, eru fyrirmynd og styðja við þá, sem þar stíga sín fyrstu skref á endurhæfingarferlinu. Um 60 af hundraði þeirra, sem þarna vinna, hafa skerta starfsorku.

Nokkur fyrirtæki hafa lýst áhuga á samstarfi við Hlutverkasetur, bæði til að geta veitt starfsmönnum og viðskiptavinum aðstoð og endurhæfingu. Allt horfir þetta til betri vegar og er það trú undirritaðs, að Hlutverkasetrið eigi eftir að gegna veigamiklu hlutverki við endurhæfingu fólks, sem hefur vegna geðraskana horfið af vinnumarkaði, þurft að leita eftir örorkubótum og ekki séð aðra framtíð en óbreytt ástand. Í þessum hópi er mikill mannauður, þekking og reynsla. Starfsemin er þjóðhagslega mjög hagkvæm og mikilvæg hverjum þeim sem er þátttakandi.

Fátt er ljúfara en að sjá þær breytingar sem verða á einstaklingum sem á nýjan leik hverfa til þátttöku í samfélaginu, eignast nýja sjálfsímynd og reisn. Starf þeirra Auðar og Elínar Ebbu hefur fært mörgum nýja von og verulegan árangur í baráttunni við þann kvilla sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir verða stærsta heilbrigðisvandamál 21. aldarinnar. Þær stöllur stefna að því að opna kaffihús sem verður hluti af umhverfi endurhæfingarinnar. Þar eiga að vinna einstaklingar með skerta starfsorku sökum geðrænna vandamála. Fjölbreytt störf verða í boði og atvinnuleg endurhæfing. Kaffihúsið verður öllum opið og er ætlað að verða skjól og vettvangur umræðna og samskipta. Starfsemi þess mun hafa mikið forvarnargildi og draga úr fordómum.

Við, sem höfum reynt að styðja þær stöllur í baráttunni, vitum að stefnumið þeirra byggjast á traustum grunni. Starfið hefur þegar borið verulegan árangur og sá árangur mun aðeins vaxa og aukast fái þær fjárhagslegt svigrúm til að sinna stækkandi hópi, sem bíður.

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og stjórnarmaður í AE starfsendurhæfingu.




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429