a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
4.3.2008 10:38
Snilld er mæld í hugmyndaauðgi
Hlutverkasetur hefur öflugan hóp Bakhjarla sem styðja við starfsemina

EINS og venjulega þegar maður tók á móti fólki hélt ég að þau væru að biðja um peninga, en þau voru ekki að því, þau voru bara að segja mér hvað þau voru að gera,“ segir Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr, um fyrstu kynni sín af starfsemi Hlutverkaseturs. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður geðheilsumiðstöðvar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heimsótti hann þá ásamt samstarfsaðilum sínum, en Þórólfur var þá borgarstjóri Reykjavíkur.

Þórólfur er nú formaður svokallaðs Bakhjarlahóps Hugarafls, en markmið hópsins er að styðja við frumkvæðið sem einstaklingar hafa sýnt í málefnum geðfatlaðra.

Eftir heimsókn Auðar hóaði Þórólfur í „lykilaðila í þjóðfélaginu“, eins og hann orðar það. Þetta voru þau Karl Steinar Guðnason hjá Tryggingastofnun en síðar tók Sigríður Lillý Baldursdóttir við, Grétar Þorsteinsson hjá ASÍ, Ari Edwald, þá hjá Samtökum atvinnulífsins, og síðar Hannes G. Sigurðsson, Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka lífeyrissjóða, Lára Björnsdóttir, sem var yfir velferðarsviði Reykjavíkurborgar þá, og síðar Stella Víðisdóttir og Þór Sigfússon, sem þá var framkvæmdastjóri Verslunarráðsins. Þau eru öll, ásamt fleirum, í Bakhjarlahópnum, sem er sjálfskipaður. „Þetta er fólk sem er áberandi og athafnasamt í þjóðlífinu og hefur mest um það að segja hvernig þessi mál þróast,“ segir Þórólfur. Hlutverkasetri var í kjölfarið komið á fót, að frumkvæði Auðar og Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, en þar er starfsendurhæfing fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustu.

„Allir þeir, sem ég taldi upp áðan, taka þátt í verkefninu sem einstaklingar, það eru engar skuldbindingar og félagsskapurinn er óformlegur. Við köllum okkur Bakhjarla en markmið okkar er fyrst og fremst að vera andlegur stuðningur við starfsemina,“ segir Þórólfur.

Aukið sjálfstraust og minni fordómar

Bakhjarlahópurinn fundar reglulega og meðlimir í Hugarafli taka alltaf þátt í fundunum. „Þau fá mjög aukið sjálfstraust við þetta, þetta minnkar fordóma, þau eru ekki feimin við að segja það sjálf að þau séu að koma sér inn í atvinnulífið aftur,“ segir Þórólfur og bætir við að miklir hagsmunir séu að fá þetta fólk aftur inn í atvinnulífið. „Ísland er svolítið sérstakt með það að atvinnuþátttakan er svo nátengd hlutverkinu. Fólk spyr: hver ertu? og þá er átt við hvað gerirðu?“ segir Þórólfur og hlæjandi viðurkennir hann að þessum spurningum fylgi gjarnan spurningin hverra manna ertu.

Innan Bakhjarlahópsins ríkir mikil ánægja með að Hlutverkasetur hefur tekið til starfa. „Við höfum stutt það rekstrarform sem Elín Ebba og Auður hafa kosið sér; að hafa það sem einkahlutafélag sem er rekið með engri hagnaðarvon, heldur að arður gangi til uppbyggingar félagsins,“ segir Þórólfur. Óháðir aðilar sitja í stjórn Hlutverkaseturs, í sjálfboðavinnu, en það eru Andri Árnason lögmaður, Hulda Styrmisdóttir, Sæunn Stefánsdóttir, Árni Gunnarsson og Þórólfur sjálfur. Eiríkur Guðmundsson, rekstrarstjóri Hlutverkaseturs, lýsti því svo í samtali við Morgunblaðið að allir þeir sem tækju þátt í starfinu, hvort sem væri Bakhjarlar eða í stjórn, gerðu það af hugsjón. „Við gerum þetta bara til að aðilar úti í bæ hafi trú á þessu og höfum lagt nöfn okkar og ábyrgð við þetta einkahlutafélag,“ útskýrir Þórólfur.

„Hugmyndafræði Hlutverkaseturs er að hafa tekjustreymi með þrenns konar hætti; þjónustusamningum við opinbera aðila, en slíkir samningar hafa verið gerðir við félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Nú, með samningum við lífeyrissjóðina, þar hefur ríkt mikill velvilji gagnvart þessu starfi. Síðan viljum við líka opna fyrir einkaaðila og fyrirtæki til að koma að rekstrinum. Sparisjóðirnir hafa t.d. komið myndarlega að verkefnum Hlutverkaseturs, með sérstakri fræðslu til ungs fólks.“

Í Hlutverkasetri er hluti notenda í endurhæfingu, til að undirbúa endurkomu í atvinnulífið. Einnig starfar þar nokkur fjöldi, mest í hlutastörfum. Þórólfur hrósar notendum í Hlutverkasetri, segir þá mjög hæfileikaríka. Sem dæmi um það nefnir hann hönnun heimasíðunnar, hlutverkasetur.is, en notendurnir sáu alfarið um hönnun hennar. „Þau hafa kannski ekki fulla starfsorku í átta tíma á dag,“ segir hann, „en þjóðfélagið á líka að hafa miklu meiri sveigjanleika í dag, fyrir hlutastörf, verkefnabundin störf, tímabundna ráðningu og tímabundna starfsþátttöku. Og ég segi nú bara að það er stutt á milli snilldar og örðugleika. Það er þekkt í listsköpun, tölvumálum og öðru að snilldin er ekki mæld í heilsdagsvinnu. Hún er mæld í hugmyndaauðgi,“ segir Þórólfur Árnason, formaður Bakhjarlahóps Hugarafls.

Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.




Til baka

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429