Í þessum pistli ætla ég að fjalla um verkefni hér í Hugarafli sem við köllum Samherjar. Verkefnið hefur verið í gangi í um eitt og hálft ár og þeir sem hafa nýtt sér þjónustuna hafa verið ánægðir.
Samherja verkefnið gengur út á persónulegt spjall milli tveggja einstaklinga sem þekkja geðræn vandamál. Samherjinn hefur sjálfurreynslu af því aðhafaátt við geðræna erfiðleika að stríða en er í góðum bata og vill láta gott af sér leiða.
Samherji tekur tillit til þess að einstaklingar eru í misjöfnu ástandi og mætir hverjum og einum þar sem hann er staddur. Í vissum tilvikum hlustar hann bara og sýnir skilning. Í öðrum tilfellum segir hann frá sinni eigin sögu og hvaða úrræði hafa nýst honum í baráttunni við geðsjúkdóma. Einnig talar Samherji um sín viðhorf og þá fordóma sem hann hefur þurft að takast á við, bæði persónulega og samfélagslega. Þetta er þjónusta á persónulegu plani sem allir þeir sem eru með geðsjúkdóma geta nýtt sér. Ef viðkomandi óskar eftir því að fá að hitta samherja oftar en einu sinn þá er það ekkert mál. Sem sagt í stuttu máli þá er Samherjinn sveigjanlegur og aðlagar sig að þeim einstakling sem hann er að tala við.
Samherja verkefnið gengur út á eftirfarandi:
Að benda á að það sé von.
Að bati er raunverulegt markmið.
Að sigrast á fordómum.
Að benda á úrræði og lausnir.
Að vera fyrirmynd.
Hafið eftirfarandi í huga!
Þetta er ókeypis þjónusta.
Þú hefur engu að tapa að hitta Samherja!
Þú hefur allt að græða á því að hitta Samherja!
Í versta falli segir þú við sjálfan þig, þetta á ekki við mig.
Hægt er að panta Samherjaviðtal með því að hringja í Hugarafl í síma 414-1550
Skrifað 25.02.2008.
Kári Halldórsson