Ég greindist með geðklofa og þunglyndi fyrir nokkrum árum. Ég leitaði mér aðstoðar á bráðamóttöku geðdeildar LSH og fékk þar mjög góða hjálp. En sú hjálp dugði ekki ein til. Ég var á þessum tíma mjög félagslega einangraður, hafði lítið fyrir stafni og leið ekkert sérstaklega vel. Ég var hættur að vinna og var á örorkubótum þannig að dagarnir voru mjög langir. Það var þá sem geðlæknirinn minn benti mér á Hugarafl. Ég var nú ekkert sérstaklega hrifinn af þeirri hugmynd enda átti ég erfitt með að vera innan um annað fólk. En ég lét nú samt til leiðast og ákvað að prófa, ég hafði nú engu að tapa. Næsta skrefið var að ég óskaði eftir forviðtali hjá Hugarafli og gekk það greiðlega fyrir sig. Þar hitti ég iðjuþjálfa og Hugarafls meðlim og við áttum saman gott spjall þar sem við komumst að þeirri niðurstöðu að það gæti gert mér gott að fara að stunda Hugarafl. Ég byrjaði að sækja fundi tvisvar í viku og ég fann að það gerði mér gott. Bara það að þurfa að mæta á fundi og umgangast annað fólk hafði furðu góð áhrif á mig. Ég var fljótur að kynnast fólkinu í Hugarafli og mér var mjög vel tekið. Tíminn leið og smátt og smátt fór ég að taka þátt í þeim verkefnum sem í gangi voru í Hugarafli. Núna er ég í heimasíðunefnd sem sér um vefsíðu Hugarafls, ég er í Samherja verkefninu sem gengur út að taka viðtöl við annað fólk sem á við geðræn vandamál að stríða og einnig er ég í nefnd sem við köllum hlutverkasetur, þar erum við að spá í framtíðarsýn Hugarafls.
Ég kynntist hugmyndafræði Hugarafls sem við köllum valdefling. Valdefling er hugmyndafræði sem gengur út á að efla og styrkja einstaklinginn, hvetja hann til að taka virkan þátt í sínu bataferli og að taka ábyrgð á eigin lífi. Ég get svo sannarlega sagt það að ég hef notið góðs af þessari hugmyndafræði og vitnað um að hún virkar vel.
Eftir að hafa verið í Hugarafli í þennan tíma þá hef ég eignast marga góða félaga, ég á ekki í vandræðum með að vera innan um annað fólki og mér líður bara miklu betur andlega. Ég lýt á Hugarafl sem mína vinnu og ég hef öðlast hugsjón að vinna að málefnum geðfatlaðra. Ég hef skrifað greinar og pistla, ég hef farið í skóla og á stofnanir og kynnt Hugarafl og margt fleira. Sem sagt til að taka saman þá hefur vera mín í Hugarafli gjörbreytt mínu lífi og gefið því tilgang.
Skrifað 22.02.2008.
Kári Halldórsson.