a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
18.3.2008 16:13
Geðlyf: Kostir og gallar.

Í þessum pistli ætla ég að fjalla um kosti og galla geðlyfja. Ég ætla að einbeita mér sérstaklega af þunglyndislyfjum og sefandi geðlyfjum þar sem ég hef persónulega reynslu af þeim lyfjum. Ég ætla ekki að fara út í umfjöllun um einstök lyf heldur mun ég reyna að nálgast málefnið á almennum nótum. Tilgangurinn er með þessu pistli er að vekja fólk til umhugsunar um þau lyf sem það er að taka og hvetja fólk til að kynna sér allar hliðar á þeim. Nú er ég sjálfur með geðklofa og þunglyndi og þarf að taka mikið af lyfjum til að halda einkennum sjúkdómana niðri. Ég hef verið heppinn að ég hef haft góðan geðlækni sem hefur ávallt upplýst mig um kosti og galla þeirra lyfja sem ég er að taka. Því miður eru margir sem eru ekki eins heppnir með geðlækna og vita því oft lítið um lyfin sem þeir eru að taka. Það er mín skoðun að allir þeir sem eru að taka geðlyf þurfa að vita og skilja hvernig lyfin virka og vera meðvitaðir um bæði kosti og galla lyfjanna. Hægt er að kynna sér lyf og hverjar aukaverkanir lyfin hafa á http://www.lyfja.is/ Einnig er hægt að fara á netið og afla sér upplýsinga þannig.

Þunglyndislyf.

Við skulum byrja á því að fjalla um algengustu geðlyfin sem eru þunglyndislyf. Nú á dögum er mikið úrval af þessari tegund lyfja, þar má nefna Prozac, Zoloft, Efexor og mörg fleiri. Lyf í þessum flokki hafa bjargað mörgum út úr alvarlegu þunglyndi og því verður ekki neitað að þessi lyf hafa reynst mjög vel. En því miður hafa þessi lyf aukaverkanir sem eru mismunandi eftir einstaklingum þ.e.a.s. fólk þolir þessi lyf mis vel. Algengar aukaverkanir þunglyndislyfja eru t.d. ógleði, kviðarverkir, svefntruflanir, minnkuð kynhvöt, kvíði, þvaglátstruflanir, þyngdaraukning...

Sefandi geðlyf.

Þessi flokkur lyfja er nokkuð stór og yfirgripsmikill. Hann inniheldur t.d. lyf eins og Zyprexa, Abillify, Risperdal, Seroquel , Leponex og mörg fleiri. Þetta eru lyf sem notuð eru til að meðhöndla t.d. geðklofa og geðhvörf. Kostir þessara lyfja er að þau virka vel til að meðhöndla sturlunar einkenni sem geta komið fram hjá fólki með geðhvörf og geðklofa. Það verður einnig að viðurkennast að með tilkomu þessara lyfja hefur meðhöndlun á geðklofa og geðhvörfum gjörbreyst. Hér áður fyrr var fólk með þessa sjúkdóma oft bara lokað inni á stofnunum og lítið gert fyrir það. Ef við skoðum hins vegar gallana á lyfjum í þessum flokki þá kemur í ljós að lyfin hafa margar aukaverkanir og sumar hverjar óafturkræfar. Helstu aukaverkanir þessara lyfja geta verið t.d. þróttleysi, meltingartruflanir, þyngdaraukning, hætta á sykursýki 2, hreyfitruflanir sem líkjast parkinson einkennum, Tardive dyskinesia (oft varanlegar hreyfitruflanir), þvagteppa eða leki...

Í lokin vil ég biðja þig kæri lesandi að kynna þér persónulega þau lyf sem þú ert að taka vegna þess að aukaverkanir eru mismunandi eftir lyfjum.

Sett inn á vefinn: 18.03.2008.

Höfundur: Kári Halldórsson.




Til baka

Hugarafl - Borgartún 22, 105 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429