Skip to main content
Fréttir

Fundur með aðstandendum sem hafa misst ástvini úr sjálfsvígi 21.febrúar.

By febrúar 20, 2017No Comments

Annað kvöld (þri. 21.2.) kl. 20 verður haldinn fundur með fólki sem misst hefur ástvini í sjálfsvígi. Þessir fundir eru haldnir mánaðarlega í húsnæði Hugarafls að Borgartúni 22 og eru hluti af undirbúningsvinnu samtakanna Pieta Ísland sem nú eru að hefja göngu sína. Auður Axelsdóttir heldur utan um dagskrána ásamt mér. Þarna hittast bæði nýir og reyndir syrgjendur til að miðla reynslu og þiggja styrk. Enginn fundur er eins en allir eiga þeir það sameiginlegt að þar er bæði grátið og hlegið. Gott að koma.
Kærar kveðjur.
Auður Axelsdóttir og sr.Bjarni Karlsson