a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
Geðfræðsla Hugarafls

 

 

Geðfræðslan

Skólafræðsluverkefni Hugarafls

Hugarafl, félag notenda geðheilbrigðisþjónustunnar sem eru í bata og fagfólks, hefur hrundið af stað fræðsluverkefninu Geðfræðslan. Helsta markmið verkefnisins er að draga úr fordómum gagnvart geðröskunum og notendum (geðsjúklingum) meðal nemenda í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum, auk þess að fræða þá um geðrækt, forvarnirog bataleiðir.

Frá því Hugarafl var stofnað árið 2003 hefur félagið sinnt notendafræðslu í framhalds- og háskólum. Fræðslan hefur hins vegar verið nokkuð laus í reipunum og hefur félagið fyrst og fremst sinnt eftirspurn. Eftir að fjárhagslegur stuðningur fékkst frá Sparisjóðnum var ákveðið haustið 2007 að koma fræðslunni í fastar skorður og vinna marksvisst að því að koma henni inn í grunn- og framhaldsskóla. Síðan þá hefur mikil undirbúnings- og þróunarvinna átt sér stað. Hugarafls hélt einnig nokkrar kynningar í grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík veturinn 2007-08, sem vöktu mjög jákvæð viðbrögð. Veturinn 2008-2009 héldum við á fimmta tug kynninga í grunnskólum, framhaldsskólum og Fjölsmiðjunni.

Geðfræðslan fer þannig fram að tveir félagar úr Geðfræðsluhópnum eyða einni kennslustund (40-60 mínútur) með hverjum bekk. Tala þeir hvor í 10-12 mínútur um baráttu sína við geðröskunina og fara síðan fram umræður. Við leggjum sérstaka áherslu á bjargráð sem fela í sér að ungmennin snúi ekki baki við vinum í vanda og mikilvægi tilfinningalegra tjáskipta við vini, foreldra, kennara eða aðra sem þau treysta. Reynum við einnig að hafa húmorinn ekki langt undan.

Fyrirspurnir um kynningar sendist á gedfraedslan@gmail.com

Ýmsar upplýsingar sem tengjast verkefninu:

Geðfræðslan: Fræðileg réttlæting

Helstu geðraskanir

Meðferðir:

            Hugræn atferlismeðferð

            Sálfræðimeðferð

            Iðjuþjálfun

            Geðlæknar

            Geðlyf

Stofnanir og félög sem tengjast geðvernd Barna og unglinga

Grein: Geðfræðsluverkefni Hugarafls

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429