a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
Pistlasafn

19.12.2008 17:32
Samherja verkefnið gengur vel í Hugarafli
Við í Hugarafli erum mjög ánægð með gang mála varðandi verkefni sem við köllum Samherjar. Nú þegarhafa verið tekin um það bil 70 viðtöl og hafa þau öll að okkar mati tekist vel.
Lesa meira...

11.7.2008 19:29
Gildi fyrirmynda
Eftir geðröskun er leiðin til betra lífs eða bataferlis ekki þrautalaus.Þetta er barátta upp á hvern dag.Sumt af þeirri baráttu verður maður að heyja sjálfur.Í hluta baráttunnar getur maður stuðst við aðra. Annað fólk getur þá virkað eins og hækjur með að létta af manni þunganum.Sé fótur mjög skaddaður þá eru hækjur léttir. Maður ræður hins vegar alveg sjálfur hvort að maður notar þær og hvort þær henti..Það er nefnilega maður sjálfur sem stjórnar fætinum og hversu mikið maður leggur á hann.Að hluta til finnur maður það sjálfur og að hluta til fer maður eftir leiðbeiningum fagfólks.Yfirleitt er bataferli undantekningalaust þannig.Og í öllu saman þarf maður áttavita. Viti sem lýsir upp tilfinningasjóinn er nauðsynlegur.Sá viti reynist mörgum vera fyrirmyndir í öðru fólki.
 
Lesa meira...

1.4.2008 15:49
Að lifa með geðklofa
Í þessum pistli ætla ég að fjalla um reynslu mína af því að lifa með geðklofa. Ég greindist með geðklofa fyrir nokkrum árum og á þeim tíma hef ég upplifað margt skrítið. Það verður að viðurkennast að geðklofi er erfiður sjúkdómur að lifa með en ég hef þó fundið leiðir til að takast á við hann og náð töluverðum árangri í því að halda honum í skefjum.
Lesa meira...

25.3.2008 16:17
Síðan skein sól
Erfitt getur verið að skilgreina hvenær bata er náð af geðröskun. Jafn erfitt getur verið að skilgreina hvenær er um veruleg veikindi að ræða. Hvar eru mörkin á milli þess að vera heilbrigður eða veikur. Það getur líka orðið mjög flókið að átta sig á því ferli sem leiðir til veikinda. Atburðir í ytra umhverfi eins og endurtekin áföll, missir, sorg, streita og alvarleg líkamleg veikindi geta haft mikil áhrif á sálarlíf okkar. Stundum er jafnvel ekki hægt að finna neina orsök. Hver sem orsök andlegra veikinda er, þá er það víst að verulega reynir þá á þann stuðning sem við njótum í umhverfi okkar. Sé hann ekki til staðar eða ef okkur finnst við ekki eiga hann skilið er staðan ekki góð.
Lesa meira...

18.3.2008 16:13
Geðlyf: Kostir og gallar.
Í þessum pistli ætla ég að fjalla um kosti og galla geðlyfja. Ég ætla að einbeita mér sérstaklega af þunglyndislyfjum og sefandi geðlyfjum þar sem ég hef persónulega reynslu af þeim lyfjum. Ég ætla ekki að fara út í umfjöllun um einstök lyf heldur mun ég reyna að nálgast málefnið á almennum nótum. Tilgangurinn er með þessu pistli er að vekja fólk til umhugsunar um þau lyf sem það er að taka og hvetja fólk til að kynna sér allar hliðar á þeim. Nú er ég sjálfur með geðklofa og þunglyndi og þarf að taka mikið af lyfjum til að halda einkennum sjúkdómana niðri. Ég hef verið heppinn að ég hef haft góðan geðlækni sem hefur ávallt upplýst mig um kosti og galla þeirra lyfja sem ég er að taka. Því miður eru margir sem eru ekki eins heppnir með geðlækna og vita því oft lítið um lyfin sem þeir eru að taka. Það er mín skoðun að allir þeir sem eru að taka geðlyf þurfa að vita og skilja hvernig lyfin virka og vera meðvitaðir um bæði kosti og galla lyfjanna. Hægt er að kynna sér lyf og hverjar aukaverkanir lyfin hafa á http://www.lyfja.is/ Einnig er hægt að fara á netið og afla sér upplýsinga þannig.
Lesa meira...

11.3.2008 14:50
Vera mín í Hugarafli.
Í þessum pistli ætla ég að fjalla um veru mína í Hugarafli og hvað það hefur gert fyrir mig. Ég hef verið í Hugarafli núna í um það bil eitt og hálft ár og ég hef tekið miklum framförum á þeim tíma.
Lesa meira...

6.3.2008 11:49
Samherja verkefnið.
Í þessum pistli ætla ég að fjalla um verkefni hér í Hugarafli sem við köllum Samherjar. Verkefnið hefur verið í gangi í um eitt og hálft ár og þeir sem hafa nýtt sér þjónustuna hafa verið ánægðir.
Lesa meira...

6.3.2008 11:34
Stundum virkar heilbrigðiskerfið!
Í þessum pistli ætla ég að fjalla um mína reynslu af því að leita mér aðstoðar á bráðamóttöku geðdeildar LSH. Nú hef ég heyrt marga tala illa um þá þjónustu sem þar er veitt en sem betur fer þá hef ég aðra sögu að segja. Mín reynsla af þessari þjónustu er nefnilega mjög jákvæð og sýnir að stundum virkar kerfið bara mjög vel.
Lesa meira...

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429