Hópastarf í Hugarafli
Hér fyrir neðan kemur listi yfir allt hópastarf sem Hugarafl býður upp á. Hafið í huga að þessir fundir eru einungis fyrir meðlimi Hugarafls. Til að gerast meðlimur í samtökunum Hugarafl þarf að hafa samband við okkur í síma 414-1550 og óska eftir forviðtali.
Hugaraflsfundur: Hér er um að ræða aðalfund samtakanna Hugarafls. Á þessum fundum eru allar ákvarðanir teknar er varða hugarafl. Þessir fundir standa yfir í 2 tíma í senn og eru haldnir tvisvar í viku, á þriðjudögum kl 13:00 og á fimmtudögum kl 13:00.
Tómstundahornið: Þetta er opinn hópur þar sem fólk leggur stund á þær tómstundir sem það hefur áhuga á. Tómstundahópurinn er haldinn á mánudögum kl 13:00.
Gönguhópur: Farið er í skemmtilega göngutúra. Gaman saman! Farið er tvisvar í viku, á þriðjudögum kl 11:00 og á miðvikudögum kl 13:00.
Menningarhópur: Þessi hópur er opinn fyrir öllu, farið er t.d. á listasöfn, málverkasýningar og þess vegna í bíó. Hópurinn hittist hálfsmánaðarlega á miðvikudögum kl 14:00.
Tilveruhópur: Hér hittist fólk og ræðir um lífið og tilveruna. Hópurinn hittist á miðvikudögum kl 16:30.
Batahornið: Hér er markmiðið að reyna að læra hvort af öðru. Við deilum reynslu okkar og reynum að styrkja hvort annað í átt til frekari bata. Batahornið er haldið á föstudögum kl 11:00.
Kaffi Rót: Hér hittist fólk utan Hugarafls og hefur það gaman saman. Við hittumst á kaffihúsinu Kaffi-rót á laugardögum kl 15:00.
Nýliðafundir: Hér hittast nýir meðlimir Hugarafls í umsjón reyndari meðlims. Markmiðið er að hjálpa nýliðunum að kynnast hugmyndafræði Hugarafls og að undirbúa það fyrir aðalfundi Hugarafls. Þessi hópur hittist einu sinni í viku á fimmtudögum kl 11:00.
Kynningar í Hugarafli: Hér er um að ræða almennar kynningar á starfsemi Hugarafls og er ætluð fyrir hvern sem hefur áhuga á að kynnast starfinu. Þær er haldnar á miðvikudögum kl 13:00. Við mælum með að fólk hringi á undan sér.