Hugarafl
Hugarafl
Hugarafl var stofnað í júní 2003 af notendum í bata, sem átt hafa við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum. Hópurinn starfar við miðstöðina Geðheilsa-eftirfylgd/iðjuþjálfun í Álfabakka 16, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis.
Hópurinn starfar samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar(empowerment) og öll vinna fer fram á jafningjagrundvelli. Meðlimir Hugarafls vilja miðla reynslu sinni af geðheilbrigðiskerfinu með öðrum sem láta sig málefnin varða, hópurinn vill hafa áhrif á þjónustu og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir. Það hefur sýnt sig að aukin virkni og þátttaka leiðir til þess að fólk nær betri tökum á eigin lífi.
Markmið Hugarafls er að vinna að verkefnum sem geta bætt geðheilbrigðisþjónustu, miðla notendasýn, vinna að verðmætasköpun, skapa hlutverk og vinna gegn fordómum með sýnileika og stuðla að atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu notenda.
Hugarafl hefur staðið fyrir notendakönnun á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúsi þ.e. “Notandi spyr Notanda”, haldið málþing og ráðstefnur, tekur reglulega þátt í kennslu lækna- og iðjuþjálfanema, vinnur við að þróa tenglakerfi, gefur út bæklinga og starfar við þýðingar á batahvetjandi fræðsluefni fyrir notendur og aðstandendur þeirra, svo dæmi séu gefin. Vegvísir Hugarafls hefur verið gefin út þrisvar sinnum og er upplýsingabæklingur um þjónustu fyrir geðsjúka og hvarvetna hlotið mikla athygli.
Ef þú hefur áhuga á því að senda okkur í ritnefnd Hugarafls póst þá er póstfangið hér fyrir neðan.
ritnefnd@hugarafl.is
Vefslóðin á póst Hugarafls meðlima er hér fyrir neðan.
http://vefpostur.midja.is/