Skip to main content
Fréttir

Jólastemning í Borgartúni 22

By nóvember 28, 2016No Comments

Skreytinganefndin lét hendur heldur betur standa fram úr ermum fyrir helgina og nú svífur jólaandinn yfir vötnum í Hugarafli 🙂  Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni sem tengjast jólahaldinu og eins og ávalt verður það æðruleysið og ánægjan sem ræður för í desember hjá okkur á annarri hæðinni í Borgartúni 22.   Svo dæmi séu tekin er fyrirhugað jólabingó, smákökubakstur jólaföndur og jólasönghópur sem mun stýra hópsöng á árlegu jólahlaðborði Hugarafls..  Einnig er jólagóðgerðarnefnd farin af stað sem ætlar að vinna góðverk fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu okkar þegar nær dregur jólum.  Frábært framtak þar á ferð og að sjálfsögðu hvetjum við alla til að koma, vera með og taka þátt 🙂