Skip to main content
Fréttir

Klist í Hinu húsinu

By september 22, 2017No Comments

Unga fólkið okkar í Hugarafli er að opna listsýningu!

Klist (Klikkuð List) er hópur ungmenna í endurhæfingu hjá hugarafli. Öll hafa barist við geðraskanir, fíkn og annarsskonar prakkaraskap.

Verkin eru unninn með mismunandi hætti, þar á meðal teikningar og ljósmyndir.

Sýningin verður í Gallerí Tukt Pósthússtræti 3-5 (sama hús og Hitt Húsið) frá 23. September til 10 Október.
23. September verður boðið uppá Kaffi og bakkelsi á meðan að meðlimir hugarafls spila tónlist á staðnum.

10. október er alþjóðlegur dagur geðheilsunnar og seinasti dagur sýningunnar. Það verður boðið uppá kaffi og bakkelsi og meðlimir hugarafls spila tónlist á staðnum.