Skip to main content
Geðheilbrigðismál

Líf geðsjúkra er líka dýrmætt

By ágúst 15, 2017No Comments

Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls.

Ungur maður svipti sig lífi á geðdeild Landspítalans fyrir helgi. Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls, samtaka sem aðstoða fólk við að koma sér út í lífið á ný eftir geðræn veikindi, segir þetta atvik sláandi en ekki koma á óvart í ljósi þess hve mikið álag sé á spítalanum. Mikilvægt sé einnig að grípa inn í fyrr.

Ekki er um einstakt tilfelli að ræða og þykir það gagnrýnisvert að maður í sjálfsvígshugleiðingum hafi verið færður í h erbergi þar sem aðbúnaður til sjálfsvígs var mögulegur. Málfríður segir tilfellið til marks um hve mikið álag sé á landspítalanum og í geðheilbrigðiskerfinu almennt.

„Fyrst og fremst er maður ofboðslega sleginn og sorgmæddur yfir svona tíðindum en samt sem áður vitum við það að álagið á Landspítalanum og geðheilbrigðiskerfinu almennt er gríðarlega mikið. Það kemur því miður ekki á óvart að svona gerist,” segir Málfríður.

„Hins vegar hef ég sjálf legið á geðdeild og veit það að það þarf mikið til til að geta tekist svona inn á deildinni. Ég held að svona gerist bara út af álagi, álagi á kerfinu og álagi á spítalanum,” segir Málfríður.

Hún telur að mikilvægt sé að grípa inn í fyrr þegar veikindi komi upp. „Það þarf að horfa á þetta í heild sinni. Það er löngu sprungið kerfið inn á Landspítalanum en það má grípa inn í þegar fólk er kannski ekki komið á þennan stað og bæta kerfið. Eins og til dæmis, ég get bara talað fyrir Hugarafl, það sem við erum að berjast fyrir í dag er að það leggist ekki af til að við getum gripið inn í.“

Hugarafli var neitað um fjármagn fyrir árið í ár og hafa samtökin verið að berjast fyrr tilvist sinni. „Við erum með að jafnaði 160 manns í þjónustu og það getur þýtt ef það leggist af aukið álag á Landspítalann, heilsugæslu og því miður gæti það þýtt einhver dauðsföll,“ segir Málfríður.

Málfríður telur einnig að ráðamenn þurfi að opna augun fyrir því að staðan í geðheilbrigðiskerfinu sé eins alvarleg og sjálfsvígið gefi til kynna um. „Líf geðsjúkra er líka dýrmætt,“ segir hún.