a  A  A+
Sendu okkur póst Veftré Skráðu þig á póstlista
Ungliðahreyfing

 

            Ungliðahreyfing Hugarafls er hópur innan Hugarafls fyrir ungt fólk, sem stofnaður var þann 28. ágúst 2009. Hreyfingin er öllum opin, bæði meðlimum Hugarafls sem öðrum, 18 ára og eldri. Nýjir Ungliðar þurfa ekki að vera félagar í Hugarafli, en geta nýtt sér starfið í Ungliðahreyfingunni sem stökkpall inn í starfsemi Hugarafls. Einnig geta Ungliðar haft milligöngu um að koma nýjum félögum í forviðtöl hjá Hugarafli.

            Starfsemin innan Hreyfingarinnar er mjög fjölbreytt, og er sífellt verið að auka við hana. Fastir fundir eru haldnir alla miðvikudaga kl. 18:00 í húsnæði Hugarafls, og er öllum velkomið að mæta.

            Einnig eru haldin reglulega spilakvöld og vídeókvöld. Innan Hreyfingarinnar eru svo starfrækt áhugamannafélag um pípureykingar, kvikmyndaklúbbur, bókmenntaklúbbur, og ýmislegt annað er á prjónunum. Auk þess stendur til að fara í bíóferðir, halda keilukvöld, fara í LazerTag og ýmislegt annað. Öllum er velkomið að mæta í klúbbana eða ferðirnar, og á spila- og bíókvöldin.

            Tengiliðar fyrir Ungliðahreyfinguna eru Þórey, gsm: 865 6581, Helga Björg, gsm: 845 0239, og Aron, gsm: 770 5549. Auk þess er Ungliðahreyfing Hugarafls með síðu á Facebook, .

Hugarafl - Álfabakki 16, 109 Reykjavík - Sími 414-1550 - hugarafl@hugarafl.is - Kt. 460204-2240 - 0303-13-000429