Skip to main content
Fréttir

Haust dagskrá hjá aðstandendahópum Hugarafls

By ágúst 26, 2017No Comments

Kæru félagar.

Aðstandendastarfið í Hugarafli er komið af stað eftir sumarfrí. Aðstandendahópurinn er öllum aðstandendum einstaklinga með geðraskanir opinn og nýliðar innilega velkomnir. Nýr hópur er einnig tekinn til starfa en það er hópur fyrir maka einstaklinga með geðraskanir. Hér er um mjög ánægjulega viðbót að ræða þar sem lengi hefur skort sérhæfðan hóp fyrir maka. Hvetjum ykkur til að kynna ykkur starfið hjá hópunum. Sjá einnig lýsingu á starfinu.

http://www.hugarafl.is/adstandendur-2/ ‎